sunnudagur 21. februar 1965síða 13
‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›
Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.
Tekstur á síðuni
T. S. ELIOT:
Sweenay á me
A 1 Cl - . På
armana siga let, og fnio
svo zebra-geiruð grana-rót
gíraffa-mynztri á kjammann sló.
Rosabaugar um mánans mynd
mjakast til Plata í vesturátt;
Sweenay gætir hins hyrnda hliðs;
Hrafninn og Dauðinn fljúga lágt.
Óríon følan hylur húm,
hljóður er þorrinn sær við strønd;
kvendið í spanska serknum sezt
á Sweenays hné við borðsins rønd,
hrasar og dregur dúk í køs,
dettur, og bolla í gólfið slær,
frá grunni að nýju gjørvøll rís,
geispar, og hysjar sokk á lær.
Við gluggann þøgull góndi sá
gulklæddi sláni og teygður sat;
þjónn kom með fíkjur, vínber væn
úr vermireit, og eplafat.
dal næturgala
Hið þøgla hryggdýr hniprar sig
í hnút, rís upp og skundar fram;
1
Rachel borin Rabinovitch
á berin leggur fólskan hramm.
Hún og sú spanska hafa víst
hrundið einhverju bralli á stjá:
sá øðlingur sem Ýsur dró
úrvinda gýtur syfju-skjá
og gengur út; nú er hann rétt
utanvið gluggann, hallast inn
og lætur skína í gulltennt glott
í gegnum lauf sem vefst um kinn.
Vertinum einhver óþekkt stærð
á eintal vék við húsabak;
náttgalar hefja í hæðir søng
við Helgrar Náðar klaustur-bak
og sungu um dreyra drifinn skóg
er dundi Agamemnons vein,
og létu drjúpa úr lofti flekk
á líksins klæði miður hrein.
Helgi Hálfdanarson þýddi.