Sosialurinarkiv
Sosialurin 1965-02-21, síða 34
Tak niður PDF av hesari síðu Stórt myndaskrá

sunnudagur 21. februar 1965síða 34

‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›

Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.

Tekstur á síðuni

arans, og þetta bréf gat orðið hon- um til tjóns, ef hann sýndi ekki einarðlega, að hann stóð með keis aranum. En keisarinn varð að borga endurkomu yfirhershøfðingj ans dýru verði. Wallenstein vildi engan þola við hlið sér, hann einn skyldi reka styrjøldina og annast um friðarsamninga; keisarinn skyldi engin afskipti hafa af þeim málum. En Gústaf Adólf var kom- inn langt upp í landið og virtist ósigrandi, svo að keisarinn varð að ganga að hvaða skilmálum sem var. Á ótrúlega skømmum tíma kom Wallenstein sér upp nýjum her. En hann réð ekki til atløgu við fjandmanninn. Hann sló upp her- búðum skammt frá herbúðum Svía og hélt að sér høndum og beið. Gústaf Adólf reyndi að støkkva honum burt, en: tókst það ekki. Vistir Svía tóku nú að þrjóta og sjúkdómar komu upp meðal her- mannanna, og þá lét Gústaf Adólf herinn hørfa norður á við aftur. Wallenstein hélt í ihumåttina á eftir honum og loks kom að því, sem hann hafði reynt að forðast í lengstu løg: herjunum lenti saman í orrustu við Liitzen í nóvember 1632. re Í þessari orrustu gerðist það, sem Wallenstein hafði- óttast - meir en allt annað. Hann beið ósigur. Svíar urðu að vísu að.borga sigur sinn dýru verði: falli Gústafs Adólfs sjálfs. En. ósigurinn reið Wallenstein að fullu. Næstu mán- uðina þvældist hann um með her- inp án þess að leggja til atløgu, og hann tók að nýju að gefa andstæð- ingunum undir fótinn með það, að hann kynni að yfirgefa keisarann og ganga í lið með þeim. En enn hikaði hann við að taka af skarið. Andsaðan gegn honum við hirð keisarans fór vaxandi á ný, og keisarinn sjálfur gerðist honum andsnúinn, en hikaði þó við að snúast beint gegn honum. Wallen- stein var sjúkur og talaði iðulega um að segja af sér herstjórninni, en það vildu foringjar hans ekki heyra nefni. Þeir áttu orðið inni mikinn mála hjá keisaranum og þeir þóttust vissir um, að Ferdin- apg myndi aldrei greiða hann, ef yrði uppleystur. Wallenstein lét Jú, þér megið kaupa fegurðarlyfið, en aðeins með því skilyrði, að þér segið engum frá því, undan þessum óskum þeirra, gegn því “að foringjarnir hétu honum ævarandi tryggð. Þegar komið var fram í febrúar 1634 hafði keisarinn loks látið setja Wallenstein af, og-sú ákvørð- un barst honum til eyrna. Hann setti þá allt traust sitt á samninga menn Svía, sem hann stóð alltaf í sambandi við. Eftir miðjan febrúar flutti hann sig til Eger, landa- mærabæjar skammt frá aðalstøðv- um Svía. Þangað kom hann 24. febrúar fárveikur og hafði verið borinn í burðarstól. Yfirmønnum setuliðsins í Eger tilkynnti hann, að hann hefði ákveðið að ganga úr þjónustu keisarans og því vildi hann ekki neyða neinn til að þjóna sér áfram. Foringjarnir komu sér þá saman um að myrða hann, og þóttust vita að slíkt væri ekki keis- aranum í óþøkk. Um nóttina brut- ust þeir inn í herbergi hans og þar hneig Wallenstein fyrir korða morðingjanna. ALBRECHT WALLENSTEIN hef- ur hlotið ólíka dóma síðari tíma. Hann var óvenju samsettur mað- ur. Skaplyndi hans sveiflaðist Dig- ausa á milli; stundum leik hann á . als oddi, en oftar féll hann í þung lyndi. Hann gat verið manna harð astur og miskunnarlausastur, en annars måtti hann ekkert aumt sjá og hann tók nærri sér áð neita nokkrum manni um nokkuð. Skipu lagshæfileikar hans voru átvíræð- ir; en hann átti erfitt med ad taka ákvarðanir og útkoman varð sú að hann var hvorki hrár né soðinn í flestu. Andstæðurnar í fari hans voru margar, og þær voru helzta einkenni hans. Það er í stíl við annað, að mønnum ber ekki sam- an um, hvernig augnalit hann hafði. Wallenstein var manna breytilegastur eftir því hver gáll- inn var á bonum, og þó var-hann alltaf sjálfum sér líkur.