Sosialurinarkiv
Sosialurin 1965-04-04, síða 13
Tak niður PDF av hesari síðu Stórt myndaskrá

sunnudagur 4. apríl 1965síða 13

‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›

Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.

Tekstur á síðuni

Robert Burns: Púllakvæði Hver leynir sér við hurðir mér? O. hér er bara hann Pulli. Farðu sem bráðast burt frá mér. Ég bíð um stund, kvað Púlli. Er þjófur sá, sem úti er? Aðgættu sjálf, kvað Púlli. Þú gerir eitthvað illt af þér. Ætii ekki það, kvað Pulli. En ef ég vildi opna fljótt? Þú! opnar, sagði Pulli. Þá fengi ég engan frið í nótt? Nei, fráleitt, sagði Púlli. Þú ferð víst ekki brátt á burt? Ég bíð um stund, kvað Púlli. Tii morguns eflaust ertu um kjurt? Ætli ekki það, kvað Púlli. Ef ég þér loksins leyfði inn? Ó. leyf mér inn, kvað Púlli. Þá kemurðu eflaust annað sinn. Ætli ekki það, kvað Pulli. Ef eitthvað skeður heima hér. Það hefur það, kvað Púlli. Þú segir engum eftir mér. Pei eins og steinn, kvað Pulli. Ørn Arnarson íslenzkaði. $ SST WA 250 SUNNUDAGSBLAÐ = ALÞÝÐUBLAÐIÐ FAGRAN vordag árið 1942 fór fram hjónavígsla í lítilli kirkju í París. Sólin skein á stræti borg- arinnar, eins og ekkert hefði í skorizt, en Parísarborg var þó í hers høndum. Þjóðverjar stóðu þá enn á hátindi valda sinna og Parísarborg var hernumin, eins og mikill hluti Frakklands. Brúðguminn var ungur maður og leit út fyrir að vera brezkur. Hann kallaði sig Paul Cole, en á skilríkjum hans stóð þó allt annað nafn. Og brúðurin, sem hann gekk að eiga þennan fagra vordag, var 19 ára gømul frønsk stúlka að nafni Suzanne Wareng- hem, en hún hafði líka í hønd- unum skilríki, sem hljóðuðu upp á allt annað nafn. Þau gengu bæði undir følsku nafni, og bad vissi presturinn, sem gaf þau sam- an. Honum var líka kunnugt um, að øll nauðsynleg vottorð, sem þau þurftu til giftingarinnar, voru følsuð, en hann lét það ekki standa í vegi fyrir, að hann ynni verk sitt, eins og þetta væri venjuleg gifting á venjulegum tímum. Og að sumu leyti var þetta venjuleg gifting. En það var ekk- ert venjulegt fólk, sem í hlut átti. Brúðguminn var hátt settur og mikils metinn innan frønsku andspyrnuhreyfingarinnar. »Le Capitaine Anglais" — enski høf- uðsmaðurinn — var hann kallað- ur. Hann hafði orðið eftir í Frakklandi, þegar enski herinn beið ósigur við Dunkerque, og síðan hafði hann skipulagt neð- anjarðarhreyfingu, sem aðstoð- aði brezka hermenn og brezka flugmenn, sem voru skotnir niður yfir Frakklandi, til að flýja yfir- ráðasvæði Þjóðverja til Spánar, en þaðan gátu þeir haldið áfram heim til Bretlands aftur. Nú var hann að kvænast stúlku, sem hafði unnið mikið að svipuðum verkum og hann, þótt hún væri ung að árum. Suzanne hafði lagt sig alla fram við að aðstoða brezka þegna til að sleppa undan bøðl- um Þjóðverja, og til þess hafði