sunnudagur 4. apríl 1965síða 20
‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›
Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.
Tekstur á síðuni
menn og 5 bløkkumenn. Flestir
hvítu mennirnir, þar á meðal 3
synir hans, voru gerðir að for-
ingjum hersins. Færastur þessara
foringja var barnakennari frá
Ohio, maður af svissneskum ætt-
um að nafni John Henry Kagi.
Annar þeirra hét Aaron Stevens,
ungur maður, sem á sínum tíma
hafði hlaupizt að heiman til að
taka þátt í styrjøld Bandaríkj-
anna við Mexíkó. Nokkru síðar
var hann dæmdur í þriggja ára
fangelsi fyrir að hafa slegið yfir-
boðara sinn í hernum, en hann
strauk úr fangelsinu og settist
að í Kansas. Þar náði John Brown
tangarhaldi á honum. Þegar Hugh
Forbes gafst upp á þátttøku í
samsærinu, var Stevens látinn
taka við þjálfarastøðinni af hon-
um.
En John Brown vildi ekki
hefjast handa án þess að hafa
einhvern lagalegan grundvøll til
að standa á. Því boðaði hann til
ráðstefnu, sem haldin var í Chat
ham í Kanada, ekki langt frá De-
troit, en þar skyldi gengið frá
áætlunum um, hvað gert skyldi
Átøkin við Harpers Ferry
við þau landssvæði, sem John
Brown ætlaði sér að frelsa. Þessa
ráðstefnu sóttu engir þeirra
manna, sem høfðu veitt Brown
fjárhagslegan stuðning, og engir
hvítir menn nema þeir, sem voru
í flokki hans. Chatham var sex
þúsund manna bær í talsverðum
uppgangi, og margir íbúanna
voru strokuþrælar, sem Brown
gerði sér vonir um, að myndu
ganga í lið með honum. En sú
varð ekki raunin á. Eftir langar
fortølur sagði einn bløkkumann-
anna: „Eg ætla að fara með gamla
manninum," og fjórir aðrir fóru
að dæmi hans.
Brown virðist hafa gengið Í
þeirri villu, að frjálsir bløkku-
menn í Norðurríkjunum og Kan-
ada myndu flykkjast til liðs við
sig og að þrælarnir í Suðurríkj-
unum myndu gera uppreisn, strax
og þeir fréttu, að menn ráðgerðu
að frelsa þá úr ánauð. John
Brown hefði áreiðanlega komið
það spánskt fyrir sjónir, hefði
honum enzt aldur til að sjá, hvern-
ig þrælaeigendurnir í Sudurrikj-
unum skildu børn sín og bú eftir
í umsjá þrælanna til þess að fara
sjálfir og berjast gegn þeim
mønnum, sem tøldu sig vera kall-
aða til að frelsa þessa sømu
þræla.
Stuðningsmenn Browns vissu
ekki, hvar hann ætlaði að bera
niður, Þeir tøldu efalaust, að það
yrði einhvers staðar í Kansas. En
Brown hafði annað í hyggju. —
Harpers Ferry var lítill bær á
landamærum Virginíu og Mary-
lands við Potomacfljótið, þar sem
þveráin Shenandoah fellur í það.
Á þessum stað hafði herinn
vopnabúr, og því hugðist Brown
ná á sitt vald, til þess að geta
vopnað þrælana í mågrenninu/
sem hann efaðist ekki um, að
myndu óðara gera uppreisn. Hvað
skyldi gera, var honum
varla ljóst sjálfum. Annað veif-
ið talaði hann um að flýja upp
í Alleghenyfjøllin með það sem '
áynnist og mynda þar nýlendu
strokuþræla, en hina stundina
ráðgerði hann að halda herferð-
inni áfram suður á bóginn og
gefa þrælum frelsi um øll Suður-
ríkin. Að vísu sagði hann við
síðan
' ALÞÝÐUBLAÐIÐ — SUNNUDAGSBLAD 257