Sosialurinarkiv
Sosialurin 1965-04-04, síða 22
Tak niður PDF av hesari síðu Stórt myndaskrá

sunnudagur 4. apríl 1965síða 22

‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›

Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.

Tekstur á síðuni

hann til að afhenda bløkkumanni, sem var í liðinu. Það skildi Brown táknrænum skilningi og mat mik- ils. Til þessa hafði engu blóði ver- ið úthellt. En nú fóru hlutirnir að verða John Brown andsnúnir. Nokkrum skotum hafði verið hleypt af. en fyrsti maðurinn sem féll var farangursvørður á járn- brautarstøð bæjarins. Hann var hvorki þræll né þrælahaldari, heldur frjáls bløkkumaður, sæmi- lega efnum búinn og vel látinn af øllum þorpsbúum. Um það leyti sem hann féll var þess ekki gætt að støðva hraðlest, sem átti leið um, og áður en leið á løngu, var komið í hámæli, hvað gerzt hafði í Harpers Ferry. Yfirvøldin brugðu skjótt við. Herliði var stefnt til bæjarins úr øllum áttum. Áður en sólarhring- ur var liðinn frá því að árásin hófst, høfðu árásarmennirnir ver- ið umkringdir. En John Brown var í fyrstu ekki á því að gefast upp, og herliðið, sem ekki vissi, hve fjølmennur árásarflokkurinn var, fór að øllu með gát. Fyrst var sent eftir meiri liðsauka og þegar øllum undankomuleiðum hafði verið lokað, var hringurinn þrengdur. John Brown hafði leitað hælis í vélahúsi vopnabúrs ins, og á þriðjudagsmorgun kvaðst hann fús til að gefast upp, ef honum væri heitið grið- um, svo að hann gæti horfið burt með menn sína. Að þessu hlógu yfirmenn hersins aðeins og fyrir- skipuðu árás á vélahúsið. Það sló í harðan bardaga, en menn Browns voru skjótt ofurliði born- ir. Tíu menn voru þá fallnir af Brown, þar á meðal tveir synir hans, og sjálfur hafði hann særzt í bardaganum. Sjø árásarmannanna tókst að komast undan, en fimm voru handteknir og fluttir í fangelsi í Charlestown, þar á meðal John Brown sjálfur. Árásin hafði mis- tekizt með øllu. Viku eftir þessa atburði var John Brown leiddur fyrir rétt og sex døgum eftir það — eða 2. nóvember — var hann dæmdur til dauða. Aftakan var ákveðin mån- uði síðar eða 2. desember. Norð- urríkjamenn héldu því margir fram, að John Brown hefði raun- verulega verið myrtur af Suður- ríkjamønnum, enda gæti andstæð- ingur þrælahalds ekki gert sér vonir um að njóta réttlætis fyrir dómstól í þrælaríki. En sannleik- urinn var sá, að réttarhøldin yf- ir John Brown voru í alla staði løgmæt og hann fékk þar fullt tækifæri til að koma afbøtunum sínum á framfæri. Honum voru settir tveir løgfræðingar til varn- þegar Brown vildi ekki annan þeirra, var honum leyft að kalla til løgfræðing frá Norður- ríkjunum. En á hinn bóginn var sekt Browns ótvíræð. Hann átti aðeins eina leið færa til að bjarga lífinu, og þá leið vildi hann ekki fara. Hann hefði getað sagzt vera vitskertur, og þá staðhæfingu hefði verið unnt að styðja með ærnum røkum. Verj- endur hans vildu fara þessa leið og þeir høfðu í høndum upplýs- ingar um, að geðveiki væri algeng í ætt Johns Browns, en hann kaus heldur sjálfur að vera hengdur en notfæra sér þá afsøk- un. Verjendurnir gátu því ekki annað en lýst yfir þeirri sannfær- ingu sinni, að Brown hefði fram- ið glæpi sína í góðum tilgangi. Og auðvitað stoðaði það ekki neitt. Framkoma Johns Browns fyrir réttinum var mjøg til þess fallin að auka virðingu manna fyrir hon- um, og hún mun enda hafa átt drýgstan þátt í að gera hann að pislarvotti. Virðuleiki hans og hugrekki og sú sannfæring, að hann væri verkfæri guðs, sem ekkert hefði gert nema vilja hans, fékk menn til að finna samúð með honum. Sumir tøluðu um „heilagan John hinn réttláta," — aðrir søgðu eins og Emerson, að „John Brown varpaði dýrð á gálg- ann. svo að hann yrði sem kross." Og orðstír hans barst langt út fyrir landamæri Bandaríkjanna. Í Frakklandi sat skáldið Victor Hugo, og aftaka Browns fékk svo mjøg á hann, að hann teiknaði af henni nokkrar myndir, sem nú eru varðveittar á safni í París. Aðrir litu raunsærri augum á málið. Abraham Lincoln sagði: „John gamli Brown hefur verið tekinn af lífi fyrir uppreisn gegn ar, og ríkinu. Vér getum ekki áfellzt pad, enda þótt hann væri sammála oss í því að telja þrælahald rangt. Það getur þó ekki afsakað of- beldi, blóðsúthellingar og land- ráð. Það eru honum engar máls- bætur, að hann taldi sig sjálfur hafa réttinn sín megin“. Aftakan vakti meiri athygli en búizt hafði verið við. Yfirvøld Virginíu óttuðust, að reynt yrði að bjarga honum á síðustu stundu, og þess vegna voru sex herdeild- ir látnar vera við aftøkustaðinn. „Eg hélt ekki að aftaka mín væri talin svona merkileg," sagði Brown sjálfur, þegar hann varð var við þetta. Og það kom fljót- lega í ljós, að þessi viðbúnaður allur var óþarfur. Brown var hengdur, án þess að nokkur hreyfði hønd eða fót honum til bjargar. — En eins og segir í søngnum um hann, þá dó hann ekki með øllu á aftøkustaðnum. Minningin um hann lifði áfram eða réttara sagt, minningin um frelsishetjuna, ofurmennið gøf- uga, sem barðist þrotlaust gegn óréttlætinu. Sá John Brown, sem lifði í minningunni, átti hins vegar ekki mjøg mikið skylt við þann, sem hafði lifað hér á jørð- unni og gert árásina á Harpers Ferry. Sunnudagsblað AlI- þýðublaðsins birtir fúslega skemmtilegar og vel skrifaðar frá- sagnir, sem því kunna að berast, og blaðið heitir á lesendur sína, að senda því greinar og søgur, til þess að blaðsins verða sem fjølbreytt- efni megi ast. ALÞÝÐUBLAÐIÐ = SUNNUDAGSBLAD 254