Sosialurinarkiv
Sosialurin 1965-04-04, síða 27
Tak niður PDF av hesari síðu Stórt myndaskrá

sunnudagur 4. apríl 1965síða 27

‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›

Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.

Tekstur á síðuni

hafði oltið niður á herðablaðið og hvíldi þar eins og á hillu. Allt í kringum hann var dót, enn stærra og skærara en það, sem þau fundu niðri í salnum, og laufið hafði drifið að beinagrindinni, svo það var eins og hann lægi sofandi á grænni grund. Dálítil pjatla af upplitudu bláu efni, sem einhvern veginn hafði orðið afgangs hja fuglunum, lá yfir um mjøðmina eins og til hæversku; en hún moln- aði í sundur í duft, þegar Lísa tók hana upp. Þriðji fetaði sig meðfram beinagrindinni. „Hann hefur verið næstum sex feta hár." „Það voru þá til risar," sagði Lísa. „Og þeir léku pantleik," sagði Annar eins og það benti þó til að þeir væru mannlegs eðlis „Máni ætti bara að sjá hann," sagði Fyrsti, „það mundi lækka í honum rostann.” Máni var stærsti maðurinn sem uppi hafði verið í Botni, en hann var fetinu lægri en beinagrindin. Þau stóðu um hverfis hana og horfðu niður fyr- ir sig eins og þau skømmuðust sín. Loksins Annar upp úr þurru: „Það er áliðið. Eg er far- inn heim." Hann høkti með sínu sagði lagi yfir að stiganum og eftir andartakshik høltruðu Fyrsti og Þriðji á eftir honum. Það brast í dótinu undir fótum þeirra. Eng- inn hirti um það, né hina hlutina sem lágu glitrandi í laufinu. Þetta var enginn fjársjóður: dauði rís inn átti þetta allt. Pétur leit um øxl efst í stig- anum til að huga að Lísu. Hún sat á hækjum sínum á lærleggj- um risans og vaggaði sér fram og aftur: þegar hann kom til hennar sá hann að hún var að gráta »HVad er að, Lísa?“ spurði hann. Hún hallaði ser fram moti gap- andi høfuðkúpunni. „Hann er fal legur," sagði hun, .,hann er fal- legur. Og hann er rísi. Hvers vegna eru engir risar til leng- ur?” Hún hof upp kveinstafi eins og ofurlítil kerling við jarðarfør. „Hann er sex feta hár," kveinaði hún, og ýkti þá ofurlítið, „og hann hefur beina, fallega fætur. Enginn hefur beina fætur í Botni. Hvers vegna eru engir risar til lengur? Sjáðu bara allar 'tenn- urnar í munninum. Hver hefur svona tennur í Botni?" „Þú ert lagleg, Lísa, sagði Pét ur: hann tvisté fyrir framan hana og reyndi árangurslaust að rétta úr hryggnum í líkingu við beina- grindina til að athygli afbrýði vekja fann (til hvítu beina hennar hann vegna þessara beinu, þarna á gólfinu, og fyrsta sinni skynjaði hann með sér ást á þess- um lítla, rorraði þarna aftur og hjólfætta vesaling, sem fram. engir risar „Hvers til lengur?" vegna eru spurði hún einu sinni enn, og tárin féllu innan um fugladritinn. Hann fór út að glugganum dapur í bragði og leit út. Neðan við hann” var rauði kletturinn hafði rofið gólf- ið: og hann sá børnin þrjú klifra klunnalega upp langt og bratt þak ið áleiðis að kløppinni; þau báru sig eins og dálitlir krabbar, lima- rýr og vanskøpuð. Hann leit nið- sína eigin fætur, mislanga og bæklaða og heyrði hvernig hún tók enn að kveina yfir horfnum heimi. „Hann er sex feta hár beina, fallega fætur." sem ur á með 44 SUNNUDAGSBLAÐ = ALÞÝÐUBLAÐIÐ