Sosialurinarkiv
Sosialurin 1965-04-04, síða 30
Tak niður PDF av hesari síðu Stórt myndaskrá

sunnudagur 4. apríl 1965síða 30

‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›

Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.

Tekstur á síðuni

ir í átt til Mekka. Múhammeðsmenn snúa sér ekki til Mekka, af því að Múhammeð fæddist þar, heldur af því að þeir trúa, að þar hafi Abraham byggt fyrsta helgidóm eingyðistrúar, Ka'aba. Á fyrsta skeiði Múhammeðsmanna báðust þeir fyrir í átt að Jerúsalem, vegna þess að þar hafði eingyðistrú verið boðuð. En bænunum var snúið að Mekka, þegar skurðgoðadýrkun hafði verið bønnuð í hofinu þar. Eru í trúnni einhver fyrirmæli um mataræði og klæðnað? Múhammeðsmønnum er bannað að drekka nokkuð það, sem geti gert þá ølvaða. Þeim er einnig bann- að að eta svínakjøt, blóð eða kjøt af sjálfdauðum skepnum. Gyðingurinn Ibn Maymoun, sem einnig er kunnur undir nafninu Maimonedes, og var bæði læknir og trúarhugsuður, taldi þessi forboð vera gerð af heilsufarsástæðum; einkum bannið við neyzlu svínakjøts, en það skemmist mjøg fljótt í heitu loftslagi. Um fatnað eru ekki nein trúarleg fyrirmæli. Til þess er þó mælzt, að konur klæðist ekki eða hagi sér ósæmilega. Slæða fyrir andlitinu er ekki hæverskumerki. Slæðan, purdah (persneskt orð) á reyndar ekkert skylt við Múhammeðstrú. Á forn- aldarmyndum frá Babylon eru sumar gyðjur mynd- aðar með slæður fyrir andlitinu løngu fyrir daga Múhammeðs. Yfirstéttarkonur fornaldar gengu með slæður, og það hafa miðstéttakonur í Býsanz, Tyrk- landi og margar Múhammeðskonur tekið upp síðar. Hver er þáttur Kóransins í trúarlífi Múham- | medsmanna? Múhammeðsmenn trúa því, að kóraninn sé „Guðs orð." sem Múhammeð hafi fengið vitrun um að flytja mannkyninu. Hópur „ritara“ geymdi hann í minni, þegar Múhammeð fór með boðskapinn, og skømmu síðar var hann skráður í bók. Textanum hefur verið haldið óspilltum í þrettán hundruð ár. Í Kóraninum eru fyrirmæli um samskipti manna á milli ekki síður en um samskipti manna og Guðs. Kóraninn er þannig løgbók um leið og hann er ÓVé- fengjanlegur mælikvarði á øll trúaratriði. Kóraninn er ekki talinn eina bókin, sem er heiløg, né er talið, að þar séu opinberuð sannindi, sem menn hafi ekki vitað um áður. Það segir þar iðulega, að Kór- aninn sé aðeins staðfesting þeirra helgirita, sem áð- ur voru opinberuð. Gamla- og Nýja testamentin eru oft nefnd í Kóraninum og þar er Gyðingum, kristn- um mønnum og Múhammeðsmønnum gefið sam- leitið „bókarþjóðirnar.“ Øll boðorð Gamla Testamenntisins finnast í Kór- aninum, nema ef til vill fyrsta boðorðið, sem skilja má svo, að því sé beint að takmørkuðum hópi manna aðeins, og fjórða boðorðið, sem Múhammeðsmenn skilja ekki, því að þeim finnst það felast í því. að Guð hafi þurft hvíldar við. Spámenn Gamla Testa- mentisins eru nefndir í Kóraninum og søgur þeirra Kallað til bæna. endurteknar þar. Jesús er sýnd mikil virðing og hann kallaður „Orð Guðs." Hvað skilur þá Islam og kristin dóm? Í fyrsta lagi eru engin meinlæti iðkuð meðal Múhammeðs- manna. Lífið er þess virði að því sé lifað. og trúar- stríð mannsins kemur fram í støðugri viðleitni hans til að forðast illt og rækja dyggðir og vera nytsamur náungum sínum. Vegna þess, að Múhammeðsmenn trúa því, að Guð sé einn, trúa þeir ekki á þrenn- ngu. Af því að þeir trúa, að allir menn séu jafnir í augum Guðs, trúa þeir því ekki, að hægt sé að gera nokkurn með vígslu meiri háttar en hinn minnsta meðal smælingjanna. Þeir þekkja enga skipulagða kirkju. Og þar eð þeir trúa, að menn séu fæddir frjálsir, aðhyllast þeir ekki kenninguna um erfðasynd. Af því leiðir, að þeir hafna kenningunni um friðþægingardauða krossfest'ngarinnar. Að þessu frátøldu er enginn meginmunur á Islam og kristinni trú eða Gyðingdómi. Munurinn á Islam og trúarsetningum sumra trúflokka mótmælenda er jafnvel minni en munurinn milli þessara trúflokka og rómversk-kaþólsku kirkjunnar. Samskipti Mú- hammeðsmanna og kristinna manna og Gyðinga eru ekki bønnuð. Múhammeðsmaður getur kvænzt krist- inni konu eða Gyðingi eg hún fær að halda trú sinni. En børn sem fæðast í slíku hjónabandi, eru talin Múhammeðstrúar. En kona af Múhammeðs- trú má þó því aðeins giftast manni af annarri trú, að hann taki trú hennar. Þar sem Múhammeðsmenn trúa því, að boðskapur Guðs sé sannur og hljóti því að vera sá sami í ølium trúarbrøgðum, skýra þeir muninn, sem er á kristindómi, Gyðingadómi og Islam, á þá leið, að ALÞÝÐUBLAÐIÐ — SUNNUDAGSBLAÐ 267