Sosialurinarkiv
Sosialurin 1965-02-21, síða 17
Tak niður PDF av hesari síðu Stórt myndaskrá

sunnudagur 21. februar 1965síða 17

‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›

Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.

Tekstur á síðuni

Verndargripurinn „Ekki vænti ég, að þig vanhagi um dynamit?” Að bessu spurði Sekiguchi vin- ur minn mig. Ég hafði ekki séð hann í fjøgur eða fimm ár. Við høfum hitzt af tilviljun á gøtunni og sátum yfir glasi á efri hæðinni í litlu veitingahúsi. Ég hafði verið skólafélagi Seki- guchis. Nú starfaði hann við bygg- ingarfyrirtæki. Það var ekkert skrýtið áð hann gat komizt yfir dýnamít. En spurningin var engu að síður dálítið óvænt. „Ég veit ekki, hvað ég ætti að gera með það." ',Ég er með það ef þú skyldir vilja fá það". Þetta hlaut auðvitað að vera grín. Ég brosti og hellti aftur í glasið hans. „Það mundi springa í høndunum á mér. Og hvað er auk þess unnið við að ganga með dýn- amit á sér?" Sekiguchi sagði mér þá þessa søgu. ' Konan mín og ég búum två ein í fjølbýlishúsi. Ég skrifaði mig á biðlistann fyrir tveimur árum, og í fyrravor kvæntist ég áður en ég hafði fengið nothæfa íbúð. En í haust fékk ég eina af leiguíbúð- unum. Ég var í sjøunda himni. Allt virtist hafa tekið á sig nýja og ferska mynd. Við høfðum áður búið hjá fjølskyldu minni, sem er stór. Við høfðum ekki haft nema eitt herbergi, og við vildum fá húsnæði, þar sem við gætum læst aðra úti. Og nú høfðum við fengið herbergi með lás. Þú getur nærri, hve mikið það hafði að segja fyr- ir:okkur. i Við høfðum sem sagt fengið hús- næði fyrir okkur. En ég var ekki búinn að vera þarna út misserið, þegar ég fór að finna til óøryggis og leiða. Mér fannst ég einhvern veginn vera að hverfa. Þetta var engum að kenna, — þáð má kalla það einhvers konar taugaveiklun. Ég get varla sagt heldur, að það hafi verið honum að kenna, en þó var það Kurose, sem kom þessu af stað. Það var seint um kvøld. Ég hafði verið í veizlu. Strætisvagn- arnir voru hættir að ganga, og ég tók leigubíl og fór úr honum við aðalinnganginn. Ég vonaði að næt- ursvalinn hefði gert mig algáðan, þegar ég kæmi að álmunni, sem ég bjó í. Á undan mér gekk maður. Mér fannst það vera ég sjálfur, sem ég sæi í bakið á. Hann var með sams- konar flókahatt og hélt á sams- " konar bøggli í vinstri hendinni. Á gøngu hans mátti sjá, að hann hafði líka setið að drykkju. Það var þoka þessa nótt, og mér datt í hug, að ég væri að horfa á skugg- ann af sjálfum mér. En þetta var enginn skuggi. Hann hélt áfram, og mér fannst hann vera eftirmynd mín sjálfs. Hann gekk inn í E-álmuna, sem ég bý í, og hann fór upp stigann, sem ég geng alltaf upp. Þetta var að vísu stórt fjølbýlis- hús, en ég þekkti þó það fólk, sem gekk um stigana, sem ég notaði sjálfur. Og ég þekkti hann ekki. Hann gekk upp eins og hann nauða þekkti þessa stiga. Hann fór upp á þriðju hæð og barði þar á dyrn- ar til hægri. Það var íbúðin mín. Og mér átti eftir að bregða enn meir í brún. Dyrnar opnuðust, og honum var hleypt inn eins og hverjum Eftir Masao Yamakawa 134 SUNNUDAGSBLAÐ — ALÞÝÐUBLAÐIÐ- Masao Yamakawa er í hópi yngri Japan og er Sunnu- efnilegustu rithøfunda í dagsblaðinu ánægja að geta kynnt hann lesendum sínum. øðrum eiginmanni, sem væri að koma þreyttur heim úr vinnunni. Ég hélt að konan mín hefði feng ið sér elskhuga. Það hlaut að vera. Ég hljóp hljóðlega upp stigann. Ég skyldi standa þau að verki. Ég lagði eyrað að dyrunum. Ég get illa lýst því, hvernig mér leið. Mér hafði skjátlazt. Hann var ekki elskhugi hennar. Hann var ég sjálfur. Nei, bíddu aðeins við. Ég er ekki genginn af vitinu. En ég hélt að ég væri það. Ég heyrði hana segja: „Jiró, Jiró", og hún hló og sagði honum, hvað systir mín hefði sagt, þegar hún leit inn um daginn. Og ég heyrði í þreytulegri rødd sjálfs mín á milli. Hún fór fram í eld- húsið til að taka til mat og ég virtist vera að lesa blaðið. Ég vissi ekki, hvaðan á mig stóð veðrið. Þetta var annar „ég“; það lá í aug- um uppi. En hver var þá þessi ég, sem stóð eins og bjáni frammi á stigaganginum? Hvor var „ég“ og hvor var ég? Hvert átti ég að fara? Ég hafði haldið mig vera algáð- an, en ég er hræddur um, að ég hafi verið hreyfur ennþá. Ég hafði glatað þeirri sannfæringu, að ég væri ég sjálfur. Það hvarflaði ekki að mér, að mað urinn inni væri ekki ég, að honum hefði skjátlazt. Ég opnaði dyrnar, aðeins af því að mér gat ekki dott- ið neitt annað í hug til að gera.