Sosialurinarkiv
Sosialurin 1965-02-21, síða 18
Tak niður PDF av hesari síðu Stórt myndaskrá

sunnudagur 21. februar 1965síða 18

‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›

Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.

Tekstur á síðuni

„Hver er þar?" sagði hún. „Ég“, svaraði ég að lokum. Það gekk mikið 4. Konan min kom æpandi fram. Hún horfði á hinn manninn, sem líka var ég, og rak aftur upp óp og kastaði sér í faðm mér. Varir hennar titr- uðu og hún féll í grát. Hinn „ég“ stóð upp. Hann var náfølur. Hann hét Kurose Jiró. Sekiguchi þagnaði og varð hugsi á svip. Hann hellti hrísgrjóna- brennivíni aftur í glasið . „Annar þú“, sagði ég hlæjandi, „tvífari“. Hann leit á mig en virtist ekkert taka eftir því sem ég sagði. Hann hélt átram með søguna alvarlegur í bragði. Kureso var ekkert nema afsakan- ir. Þegar hann rétti mér nafnspjald sitt, sá ég í hverju misskilningur- inn lá. Ég bjó í íbúð E-305, hann í D-305. Hann hafði farið inn í ranga álmu og upp í íbúðina mína. Systir mín heitir Kuniko. Hann var verkfræðingur og átti frænku, sem hét Kuniko. Hann hét Jiró að skírnarnafni eins og ég. Hann bjó einn með konu sinni. Samstaðan var algjør. „Mér þótti hún nokkuð ungleg. Ég er líka búin að vera kvæntur í fjøgur ár", sagði hann um leið og hann fór. Hann sagði þetta eins og því væri ætlað að vera gullhamr- ar, en ég var ekki í skapi til að láta blíðka mig. Mér var efst í huga sú staðreynd, að hvorugt þeirra hafði fekið eftir mistøkunum fyrr en ég opnaði dyrnar. „En ég fór fram í eldhúsið og hann breiddi úr blaðinu eins og þú ert vanur að gera. Það hvarfl- aði ekki einu sinni að mér að þetta væri einhver annar en þú". Ég álásaði henni, og hún leit með athygli út yfir stofuna. „Það er ekki aðeins íbúðin. Þau hljóta sjálf að vera alveg eins og við. Þú sást, að hann hélt, að ég væri konan hans. Ég er hrædd við þetta". Ég ætlaði að tala, en hætti við það. Það var ekkert að villast á fólki eða íbúð — slíkt var alltaf að koma fyrir. Það, sem olli mér áhyggju, var að Kurose hafði villzt á lífi okkar og sínu. Konan mín hafði haldið að Ku- rose væri ég. Voru þær þá svona líkar, heimkomur manna í þessum fjølbýlishúsum. Ég vissi að sjálf- søgðu, að íbúðirnar voru allar eins. En ég spurði sjálfan mig: hefur líf okkar verið støðlað? Þú veizt, hvernig það er að búa í fjølbýlishúsi. Øllu er hagað eins hjá øllum. Skilyrðin fyrir að kom- ast inn og þørfin til að fá þar inni — þetta hefur í før með sér að lífskjør allra eru svipuð. Við er- um.øll á svipuðum aldri. En mér virtist sem samræmingin væri far- in að ná inn fyrir yfirborðið. Hún var komin að sjálfum kjarnanum. Tøkum til dæmis, þegar ég rífst við konuna mína. Vindurinn ber alltaf með sér sams konar rifrildi inn um gluggann frá hinum íbúð- unum. Þetta virðist svo kjánalegt, að við hættum að deila. Það er í sjálfu sér bara ágætt. En síðan gerir maður sér grein fyrir því að fólkið í hinum íbúðunum rífst á þessum: og þessum degi mánaðar- ins klukkan þetta og þetta — og maður er sjálfur engin undan- tekning. Við þetta hverfur, þótt þér þyki það ef tíl vill undarlega orðað, helgi deilunnar. Deilan verður ekkert annað en reglubund in útrás hugsýki. Taktu vel eftir þessu. Þetta er ekki uppørvandi. Maður fer á salernið og yfir høfði manns heyrist einhver taka í snúruna og vatnið fer að renna í salernisskálina uppi. Þetta end- urtekur sig dag eftir dag. Ég hafði ekki veitt því mjøg mikla eftirtekt, en nú var þetta farið að valda mér áhyggju. Ég var að velta því fyrir mér, hvort sams konar umhverfi og samskonar størf væru farin að búa ALÞÝÐUBLAÐIÐ — SUNNUDAGSBLAÐ 135