sunnudagur 21. februar 1965síða 19
‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›
Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.
Tekstur á síðuni
okkur sams konar tilfinningar og
sams konar útrásir fyrir þær. Og
ef svo væri, þá værum við eins og
tindátar, sem er raðað upp í fylk-
ingu á borði í leikfangabúð: eins
og støðlaðar leikbrúður.
Hvar var eitthvað, sem ég átti
einn? Sem enginn átti nema ég? Í
þessu mannhafi, þar sem hver var
øðrum líkur, var ég ekki annað en
baun, sem hefur verið løgð til þerr
is í baunabreiðu. Ég gat ekki einu
sinni þekkt mig frá hinum.
Konan mín sagði orð, sem bættu
ekki úr skák. Við vorum komin í
rúmið.
„Þetta er undarlegt. Þegar ég
fer á salernið, heyri ég vatnið
renna bæði fyrir ofan og neðan.
Við gerum
sama“. ; '
fø sneri mér frá henni. Við
karlmenn hússins fórum eins að á
hverri nóttu, eins og eftir merki.
Ég missti áhugann á því líka. Hve-
nær sem konan mín hvíslaði ein-
hverju að mér, fannst mér allar
konur í húsinu vera að hvísla í
einu. Ég heyrði hvislålduna' í
myrkrinu, og ég titraði.
Við høldum kannski, að við eig-
um eitthvað út af fyrir okkur. En
við eigum ekki annað en stóðlaða
daga með støðluð viðbrøgð.
Þetta virtist óbærilegt. Ekki var
ég leikbrúða!
En gat ég talið líf mitt hafa
nokkurt gildi, þegar ér gat ekki
lengur verið viss um, að ég væri
ég siálfur. en ekki einhver annar?
Gat ég elskað konuna mína? Gat
ég haldið að hún elskaði mig?
Ég ætlaði að hlæja, en hætti við
það. Sekiguchi starði alvarlega á
mig. Allt í einu lék dauft bros um
varir hans. Ég mundi að hann
hafði alltaf haft bros í miklum met
um. !
„Þetta er mjøg alvarleg saga",
sagði hann.
Kurose varð í augum mínum
fulltrúi allra þessara fjølmørgu
skrifstofumanna, þessara fjølbýlis-
húsaeiginmanna, þessara tindáta,
sem voru nákvæmlega eins og ég
sjálfur; fulltrúi alls þess miann-
fjølda. sem var „ég“.
Þú setur nærri að eftir þessa
øll nákvæmlega það
nótt kærði ég mig ekki um að tala
við manninn. Við vorum alltof lík-
ir, og hann virtist líka forðast mig
þegar hann þrýsti skjalatøskunni
sinni fast að sér. Hann virtist allt-
af vera á hlaupum.
Hann var orðinn fulltrúi allra
støðluðu tindátanna — hatur mitt
á þeim kom niður á honum. Ég
virti ekki viðlits alla þessa støðl-
uðu menn, sem voru ég sjálfur.
Ég afneitaði honum. Hann var
ekki ég. Ég var ekki einn þessara
skrifstofumanna, sem voru svo
líkir mér. Ég var ég. Ég var áreið-
anlega ekki hann. En í hverju lá
munurinn? Með hverju gat. ég
áþreifanlega sannað að um ein-
hvern mun væri að ræða?
Ég var ekki bara einhver og ein-
hver. Ég var ég, ákveðinn maður,
sem hét Sekiguehi Jiró, maður sem
ekki væri hægt að taka fyrir neinn
annan. Þetta sagði ég við sjálfan
mig hvað eftir annað.
En hvað var til að aðgreina mig
frá øðrum? Var það annað en nafn
ið? Nafn er einungis merkispjald.
Burtséð frá nafninu, hvaða sønn-
un var til fyrir því, að ég væri
ekki bara einhver fjølbýlishúss-
íbúi?
Ég varð að búa þá sønnun til —
sjálfstæði mitt, sérstæði mitt. Ég
varð að finna eitthvað, sem gréindi
mig frá øllum manngrúanum, sem
var Kurose Jiró.
Fyrir nokkrum vikum fann ég
lausnina. Verndargripur. Ég hef
leynt honum fyrir konu minni.
Hann er algjør einkaeign mín.
Þetta er verndargripurinn minn.
Sekiguchi lauk upp þúngri le8-
urskjalatøsku og tók upp úr henni
pakka, hæfilega stóran til að halda
á í annarri hendi. Hann var vand-
léga vafinn innan í gljápappír.
„Dýnamit. Raunverulegt dýna-
mit“.
Hann leysti fimlega ufan af
bøgglinum og í fyrsta skipti á æv-
inni sá ég raunverulegt dýnamit.
Það voru fjórar járntúpur, kann-
ski átta þumlunga langar, þétt-
vafðar vir og þungar miðað við
stærð.
„Þetta er verndargripurinn
minn", sagði Sekiguchi. „Við tøl-
um og tølum, en við getum ekkí
136 SUNNUÐAGSBLAÐ — ALÞÝÐUBLAÐIÐ.
losnað við að vera eins og allir
aðrir. En nú get ég spréngt þá alla
í loft upp og sjálfan mig líka, ef ég
kæri mig um það. Það var þetta
sem ég fann. Þetta er leyndarmál-
ið, sem heldur mér lifandi. Það
sem gerir mig einstæðan".
Ég rétti honur túpurnar aftur,
og Sekiguchi strauk mjúk'séa yfir
þær
„Ég held ekki að ég þurfi á
dýnamíti að halda, þakka þér
fyrir“.
„Það er slæmt. Ég þarf þess
ekki lengur við sjálfur. Ég verð að
fará að leita uppi annan verndar-
grip".
„Ég veit ekki hvort þú ert að
sera að gamni þínu eða ekki, en
had er hættulegt ...."
Sekignehi rétti upp hendina svo
að ég þagnaði. „Misskildu' þétta
ekki", sagði hann og hló. „Þú ert
gæfumaður. En ég þarf ekki leng-
ur á því að halda vegna þess að
það er ekki lengur einstætt fyrir
mig". Hann þagnaði.
„Heyrðirðu útvarpsfréttirnar. í
kvøld?“
Nei”. '
Hann brosti þreytulega. „Það
varð dýnamitsprenging í strætis-
vagni. Þrír farþegar létu lífið. hin-
ir sluppu með skrámur. Þetta var
nálægt þar sem ég bý“.
„Hvernig vildi Þetta til?“ Ég fari
áhrif hrísgrjónabrennivínsins fara
dvínandi.
Sekiguchi leit ekki á mig. Hann
vafði pappirnum hægt utan um
sprengiefnið.
„Hann bar skjalatøskuna alltaf
eins og hún væri dýrmætasti hlut-
ur í verøldinni. Og hann forðaðist
mig. Hann hlýtur að hafa fælzt
mig eins mikið og ég hann. Hanr
þurfti líka á verndargrip að halda.
„Aha?“
Sekiguchi teygði úr sér. Hann
hækkaði røddina eins og í geðs-
hræringu. „Það var sagt í útvarp-
inu. Løgreglan heldur, að dýna-
mítið hafi verið í skjalatøsku eins
farþegans, sem fórst. Það var verk
fræðingur sem hét Kurose Jiró".