Sosialurinarkiv
Sosialurin 1965-02-21, síða 20
Tak niður PDF av hesari síðu Stórt myndaskrá

sunnudagur 21. februar 1965síða 20

‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›

Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.

Tekstur á síðuni

ÞEGAR FRAKKAR urðu að veita nýlenduríki sínu í Indókína sjálf- stæði fyrir rúmum áratug, urðu tit fjógur ný ríki: Þrjú þeirra hafa verið nær støðugt í heimsfréttun- um síðan, Viet-nam-ríkin tvø og Laos, en á fjórða ríkið er sjaldnar minnzt, einfaldlega af því að þar hefur ríkt sæmilegur friður. Þetta ríki er Kambodja, og þótt þar í landi sé engin Krukkuslétta eða Vietkong-skæruliðar ásamt við- eigandi mótvægi hernaðarsérfræð- inga úr Vesturheimi, þá er þar samt ýmislegt að finna, sem í frá- søgur væri færandi. Fornleifafræðingar hafa komizt í feitt í Kambodja. Þar hefur ver- ið grafin fram heil borg með høll- um og hofum, sem standa flestum byggingum fyrr og síðar framar hvað snertir glæsibrag og fegurð. Angkor Thom nefnist þessi borg, og hún var eitt sinn høfuðborg stórveldis, en týndist síðan í frum- skóginn og fannst ekki aftur fyrr en á síðari hluta nítjándu aldar. Forfeður Kambodja-manna nú- tímans var þjóð, sem kallaði sig Khmera, og það voru Khmerarnir, sem byggðu hallirnar og hofin í Angkor Thom. Þessi þjóð var með øllu óþekkt fyrir aðeins hundrað árum, en nú hefur saga hennar verið lesin úr áletrunum og øðrum handaverkum hennar, sem frum- skóginum hefur verið þrøngvað til að skila. Á veggjum bygginganna er fjøldi mynda, sem lýsa lífi og størfum Khmeranna og þar er fjøldi áletrana, sem skýra frá af- rekum þeirra og konungum. Eins og saga flestra annarra þjóða hefst saga Khmeranna með þjóðsøgnum og helgiævintýrum. Í einni elztu søgn þeirra segir að í øndverðu hafi dóttir mánans ver- ið drottning yfir landinu og ríkt ein. En þá kom í heimsókn brah- min frá Indlandi. Honum varð mikið um, þegar hann sá, að drottn ingin og þegnar hennar gengu nakin, og hann gaf drottningu dúka og kenndi henni að sauma klæði. Og søgunni lýkur auðvitað á því, að Indverjinn kvænist síðan drottningunni og fékk með henni ekki hálft, heldur allt konungs- ríkið. Þessi Søgn er ekki alveg út í blå inn. Menningu sína fengu Khmer- arnir að miklu leyti frá Indlandi. Indversk trúarbrøgð voru þar alls- ráðandi og guðinn Visnu, hefur fjóra handleggi, bláan fót, lótusaugu og fæðingarmerki á brjóstinu, varð høfuðgoð lands- manna. Flest hofin voru reist til heiðurs honum eða réttara sagt til heiðurs staðgengli hans eða jarð- neskri mynd hans: konunginum. um. sem Kongurinn var meira en maður. Hann var guðinn sjálfur og vald hans var algert. Hann stýrði ekki aðeins veraldlegum málum lands- ins, heldur réð hann líka yfir øllu árferði, yfir regni og þurrkum. Hann skapaði allt og hélt øllu við lýði. Mørg hofanna voru byggð sem grafhýsi konunganna til þess að hægt væri að dýrka þá áfram eftir dauðann og njóta þannig ár- gæzku þeirra um aldur. Hofaborgin, sem hvari ALÞÝÐUBLAÐIÐ — SUNNUDAGSBLAD 137