sunnudagur 21. februar 1965síða 24
‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›
Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.
Tekstur á síðuni
søgðu Sir John að á annarri eyju ekki langt frá,
byggju enn hávaxnari menn, 45 eða 50 fet, en ekki
vill Sir John ábyrgjast að það sé satt. „Ég sá engan
þeirra“, segir hann varfærnislega. ;
Þá kom hann í land, þar sem íbúarnir voru and-
stæður þessara trølla. Það var við ána Dalay, sem er
stærsta fljót veraldar. Þar eru íbúarnir ekki nema
þrjár hverhandir á hæð, en fagrir ásýndum, bæði
karlar og konur. Þeir ganga í hjónaband hálfs ann-
ars árs að aldri og geta børn,, enda lifa þeir ekki
nema sex eða sjø ár. Þeir, sem verða átta ára, eru
taldir fjørgamlir. Þessir menn eru miklir smiðir á
gull, silfur, silki og annað sem hagleik þarf við,
og stundum herja þeir á fugla í nágrenninu, sem
þeir leggja sér til munns. Ekki vinna þeir á økrum
cða í víngørðum, heldur hafa þeir í þjónustu sinni
menn af venjulegri stærð og láta þá vinna fyrir sig.
Tvennt var það, sem miðaldamenn leituðu einkum
að á ferðaløgum sínum. Annað var hin jarðneska
Paradís, aldingarðurinn Eden øðru náfni: hitt var
ódáinslindin, uppspretta æskunnar. Frá báðum þess-
um støðum kann Sir John Maudeville að segja. Hann
telur Paradís vera nærri Polombe (Colombo) á Ceyl-
on, en segist ekki geta skýrt frá þeim stað sem skyldi,
því að þangað hafi hann ekki komið. En margir fróð-
yr menn hafa skýrt honum frá staðnum og hann vill
ckkert vera að liggja á þeirri vitneskju. Hin jarð-
reska Paradís er hæsti staður á jørðu, enda stóð
nún ein upp úr, þegar Nóaflóð gekk yfir jørðina.
Umhverfis Paradís, er múr, sem menn vita ekki úr
hvaða efni er hlaðinn. Þessi múr liggur frá suðri
til norðurs og á honum er aðeins eitt hlið, sem er
lokað með brennandi eldi, svo að enginn dauðlegur
maður þori að leita þar inngøngu. Enda er mønnum
ekki heimilt að nálgast þennan stað, og það má
skilja, að sú sé eina ástæða þess, að Sir John verður
eingøngu að byggja á søgusøgnum um staðhætti í
Paradís.
Hins hefur hann haft nånari kynni af
cdåinslindinni. Í Polombe er mikill og fagur brunn-
ur, segir hann, sem hefur ilm og bragð allra krydda.
Hann breytir á stundarfresti um ilm og bragð, og
þeir, sem drekka þrisvar af honum, án þess að eta
a milli, læknast af hvaða sjúkdómum sem þeir kunna
að hafa. Þeir, sem drekka af brunninum, fá aldrei
krankleika og eru ætíð ungir. Þennan brunn kalla
sumir sækubrunn, og það er talið að vatn hans sé
Paradís. Af þessum brunni kveðst Sir
vegar
komið úr
John hafa drukkið tvisvar eða þrisvar sinnum, og
hann er ekki frá því að það hafi orðið sér til
heilsubótar.
Sir John Maudeville skýrir frá mørgu fleiru
furðulegu í riti sínu en hér hefur verið nefnt.
Hann er fróður um kentára og aðrar furðuskepnur,
þar á meðal segir hann frá gømmum, sem séu vaxn-
ir sem ernir að ofan en sem ljón að neðan. „Og
þetta er satt“, bætir hann við á eftir eins og hann
zé hræddur um að einhverjir hafi ekki við að trúa.
Þótt undarlegt megi virðast, er svo að sjá að ein-
hverjar efasemdir um það hafi sótt að Sir John, því
að áður en hann gengur að fullu frá bókinni, send-
ir hann handritið til páfa og biður hann að leið-
rétta af óskeikulli vizku sinni þær missagnir, sem
þar kunni að finnast. Þetta gerir Hans Heilagleiki
fúslega „og bók mín er því staðfest af Himum
Heilaga Føður að efni og framsetningu, eins og ég
hef skráð hana“, segir Sir John í bókarlok. Og þá
þarf auðvitað ekki frekar vitnanna við.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ = SUNNUDAGGBLAÐ 14]