Sosialurinarkiv
Sosialurin 1965-02-21, síða 26
Tak niður PDF av hesari síðu Stórt myndaskrá

sunnudagur 21. februar 1965síða 26

‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›

Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.

Tekstur á síðuni

Guðjón Hjørleifsson inn aftur fyrir bátinn. Sjórinn hafði nefnilega tekið tógið um leið og hann tók mig útbyrðis. Ég hafði tekið eftir því, þegar ég fór útbyrðis að annar vélstjóri var í vélarhúsinu og að hann hafði séð mig, en aldrei varð ég þess var, að hann kallaði eða hefðist neitt að mér til bjargar. Ég hal- aði mig nú á tóginu að bátnum og komst inn fyrir af eigin rammleik en ekki annarra. Um leið og ég stóð upp sagði annar vélstjóri og glotti: „Nú, ég sem hélt, að þú hefðir farið fyrir borð". Mér varð ekki meint af þessu volki. En þarna bjargaði draumur- inn mér. Ég hafði bundið tógið fast við spilfétinn. Það hafði ég gert án þess að vita greinilega hvers vegna ég gerði það, en þó fannst mér, að það kæmi á einhvern hátt við søgu í draumnum ,sem mig hafði dreymt um nóttina. Og síðan héldum við áfram og alla leið til Seyðisfjarðar, en við vorum í flutningum um Austfirði og til norðausturhafnanna, en fjóra sólarhringa vorum við á leiðinni. SENDUR TIL DANMERKUR ÉG var næst skipstjóri á vélskip- inu Óðni, en sumarið 1921 seint, var ég sendur til Danmerkur til þess að kynna mér meðferð og veiðar með dragnót. Ég fór til Es- bjerg og var á bátum, sem gengu þaðan. Ég kynnti mér allt, er laut að þessu veiðarfæri, sem þá var nýtt: af nálinni og stundaði ég þetta fram á árið 1922. Satt bezt að segja, leizt mér ekki á nótina og fannst þá þegar að þetta vær! rányrkjuveiðarfæri. Þegar ég kom heim, lét ég þá skoðun í ljós við“ þá sem høfðu fengið mig til farar- innar, að dragnótin kynni að reyn- ast okkur hættulegt veiðarfæri um það lyki. Annars gaf ég þeim ná- kvæma skýrslu og svo var það þeirra að taka fullnaðarákvørðun. En í stuttu máli sagt, þá fóru þeir ekki eftir mínum ráðleggingum heldur keyptu sér þetta nýja. veið arfæri og fóru að nota það af. miklu kappi. Síðar kom það okkur Íslendingum óþyrmilega í koll eins og kunnugt er. En þá fýsti í létt- fenginn stundarafla og hugsuðu minna um framtíðina. En erum við ekki einmitt svona gerðir mennirnir? * Í FLUTNINGUM VIÐ NOREG NÆSTU vertíðir var ég með mót: orbáta og stundaði ýmsar veiðar. En 1925 réðst ég á norskan línu- veiðara, sem hét Scandia. Hann gekk frá Seyðisfirði og var ég stýrimaður. Þegar síldarvertíð lauk, fórum við til Noregs og vor- um í flutningum milli Álasunds og fiskiveranna við Lofoten. Þetta var skemmtilegt starf og þá kynnt- ist ég náið Norðmønnum og líf- inu í verstøðvunum í Norður-Nor- egi. Norðmenn eru duglegir menn, viðbragðsfljótir og harðir af sér. Mér fannst að flest væri líkt með okkur og þeim, að minnsta kosti við fiskveiðar. Það var dálítið subbulegt í verstøðvunum, drykkja allmikil í landlegum og gekk þá mikið á, en ekki vantaði hørkuna við sjálfa sig þegar mikið lá við. En þannig erum við Íslendingar líka. Scandia var hálfgerður dall- ur og eyddi hann miklu af kolum. Útgerðarmaðurinn var sítingssam- ur og var allt af að reikna út kola- eyðsluna. Hann átti í sífelldum úti- støðum við meistarann, og því lauk á þann veg, að hann sagði meistaranum upp. Út af þessu varð dálítið uppþot, en sætzt var Frásagnir Guðjóns Hjørleifssonar, stýrimanns ALÞÝÐUBLAÐIÐ = SUNNUDAGSBLAD 143