sunnudagur 21. februar 1965síða 27
‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›
Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.
Tekstur á síðuni
að lokum. Þessi sami útgerðar-
maður átti annað skip, sem hét
Ósnes og var einnig línuveiðari.
HÆTT KOMINN VIÐ
HJØRLEIFSHØFÐA
NÚ barst mér það til eyrna, að
Vestmannaeyingar hefðu keypt
gamla síldarverksmiðju í Lofoten
og var Jón gamli á Gjábakka aðal-
maðurinn í þeim kaupum. Ósnes
hafði verið fengið til að flytja
vélarnar heim til Íslands. Þess var
farið á leit við mig að ég færi með
skipið heim og lét ég til leiðast,
en norskur maður var skipstjóri.
Við fengum gott veður en dumb-
ung við og við.
Það var einu sinni á leiðinni, að
ég lá í koju og mun hafa blundað.
Allt í einu grýpur mig svo mikill
óróleiki, að ég varð alveg fridlaus
í kojunni og fór ég því fram úr og
upp. Ég hallaði mér fram yfir borð
stokkinn og fannst þá, að liturinn
á sjónum kæmi mér á óvart, eins
Áhøfnin á Regin: Frá vinstri:
Guðjón Hjørleifsson, Jónas Guðm undsson og Sigurður Þorsteinsson.
og ég hefði ekki búist við honum
eins og hann birtist fyrir sjónum
mínum. Um þetta leyti var kom-
inn svørt þoka. Ég þaut upp í brú
og sagði við skipstjóra, að ég ótt-
aðist að við værum að stíma á
land. Hann kvað það fásinnu, því
að hann kvaðst hafa verið að pæla
út kortið og samkvæmt sínum
reikningi ættum við að vera um
tuttugu sjómílur út af Portlandi.
Hik kom þó á skipstjórann og lét
hann hægja á skipinu. Ég gekk þá
að brúarvængnum og hallaði mér
yfir hann og rýndi í þokuna.
Allt í einu heyrði ég brimhljóð
og kallaði aðvørunarorð til skip-
stjórans þar sem hann stóð og var
að lóða.
„Það er víst ekki djúpt", kallaði
skipstjóri á móti. En í sama bili
birti og Hjørleifshøfði steig fram
úr þokunni.
Þarna munaði mjóu. Hefði mér
ekki liðið svona illa í kojunni
hefðum við strandað á sandinum,
144 SUNNUDAGSBLAÐ — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Friðleifur Friðriksson, Jón Jónsson,
BERDREYMI UM
NÝJAN BÁT
SÍÐAN GEKK vel til Vestmanna-
eyja og þar skipuðum við upp vél-
unum í síldarverksmiðjuna. Við
stunduðum svo lúðuveiðar við Fær
eyjar, en þaðan fórum við til Aber
deen og tókum kol, en síðan héld-
um við áfram heim til Álasunds.
Meðan ég var á Scandia, dreymdi
mig draum, sem mér hefur orðið
minnisstæður. Við høfðum verið á
síldveiðum um sumarið. Þá
dreymdi mig einu sinni, að ég
væri, ásamt fleiri mønnum, að fara
til Noregs til þess að sækja bát. Ég
þykist vera kominn á stað, sem ég
hafði ekki séð áður og að ég komi
þar að skipasmíðastøð og sjái þrjá
báta á stokkum. Mér finnst að bát-
urinn, sem stendur í miðið sé sá
sami og við séum að sækja og að
ég bendi á hann, en ég fái þau
svør, að hann sé enn ekki tilbúinn.
Lengri varð draumurinn ekki, en
ég man, að mér féll svarið, sem ég