Sosialurinarkiv
Sosialurin 1965-02-21, síða 28
Tak niður PDF av hesari síðu Stórt myndaskrá

sunnudagur 21. februar 1965síða 28

‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›

Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.

Tekstur á síðuni

fékk, mjøg illa. Nú hættum við síldveiðum og afskráðist ég á Seyð- isfirði, en. Scandia fór heim til Noregs. Þá frétti ég það dag nokkurn, að útgerðarfélag væri að láta byggja bát í Noregi og yrði hann tilbúinn til heimferðar síðari hluta vetrar. Af því að ég var orðinn nokkuð kunnugur í Noregi, var þess farið á leit við mig, að ég færi að sækja bátinn og samþykkti ég það. Ég réði mér háseta til ferðarinnar og svo fórum við. Við bjuggumst við, að báturinn stæði reiðubúinn, enda høfðu kaupendurnir fengið tilkynn ingu um það, að allt væri til reiðu eins og samningarnir um kaupin høfðu kveðið á um. Við komumst á ákvørðunarstað- inn samkvæmt áætlun og spurðum til vegar að skipasmíðastøðinni. Þangað løbbuðum við svo í góðu veðri. Þegar við komum í hana, nam ég skyridilega staðar. Ég kann aðist við allt. Þarna stóðu þrír bát- ar í røð eins og ég hafði séð í draumi sumarið áður og þarna, í miðið, stóð báturinn, sem ég var að sækja. Ég sagði við félaga mína Vitaskipið Hermóður. áður en við høfðum haft tal af nokkrum manni: „Þessi þarna í miðið er okkar bátur". Þeir størðu undrandi á mig og einn sagði: „Hvernig í óskøpunum geturðu vitað það?“ „Ég veit það", svaraði ég. Og það kom á daginn. Báturinn í miðið var ætlaður okkur, en hann var alls ekki tilbúinn. Við høfðum verið blekktir til fararinnar, farið of snemma. Mikið þvarg varð úr þessu við skipasmíðastøðina. Kaupendurnir høfðu staðið við alla sina samn- inga og kaupverðið komið í hend- ur skipasmiðanna fyrir løngu. En við þessu varð ekkert gert. Við urðum að bíða í sex vikur eftir bátnum. Og loks gátum við lagt af stað heim og gekk ferðin ágætlega. Á VARÐSKIPUM OG VITASKIPUM TVEIMUR árum síðar, eða 1927, fór ég alfarinn að austan og réðst á varðskipið Ægi, eða um leið og hann kom til landsins. Á því skipi var ég óslitið til 1930, er ég fór í Stýrimannaskólann og tók far- mannaprófið, en áður hafði ég tek- ið fiskimannaprófið. Eftir prófið fór ég á Þór og þaðan á vitaskipið Hermóð, sem stýrimaður og skip- stjóri. Það er allmikil lífsreynsla að stunda flutninga fyrir vitana. Aðstaða til uppskipunar er sums staðar mjøg erfið og starfið því hættusamt og krefst aðgæzlu og dugnaðar jafnvel meiri en á flest- um øðrum skipum. Vitaverðirnir eru einangraðir og gestakoma sannarlega ekki mikil. Enda verð ég að segja það, að það var einlæg gleði hjá vitavørðunum og heim- ilisfólki þeirra þegar við komum með vistir og annað. Það var eins og þeir mættu ekki af okkur sjá og vildu halda í okkur sem allra lengst. En okkur var aldrei til set- unnar boðið, því að bæði urðum við að reyna að halda áætlanir, sem var mjøg erfitt, vegna þess að sumstaðar gat það verið undir hælinn lagt hvort við kæmumst að vitunum, og svo varð að sæta sjávarføllum að komast að og einn- ig frá. Stundum kom það fyrir að ég kvaddi vitafólkið með hrygg8 pA» DVS