Sosialurinarkiv
Sosialurin 1965-02-21, síða 29
Tak niður PDF av hesari síðu Stórt myndaskrá

sunnudagur 21. februar 1965síða 29

‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›

Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.

Tekstur á síðuni

US ÞAÐ mun sameiginlegt skólanemendum allra þjóða, að stundum hrekkur ýmislegt skemmtilegt og skrítið út úr þeim, þegar kunnáttan eða skiln- ingurinn bregzt. Hér fara á eftir nokkur dæmi Til þess að mjólk súrni ekki, er bezt að geyma hana í kúnni. Allar skepnur eru ófullkomnar. Aðeins maður- um slíkt: inn er fullkomin skepna. Búdda er mest dýrkaður í Búdda-Pest. Darwin sagði að mennirnir væru apar. Mandólín er hátt settur embættismaður í Kína. ;->--Íbúar Egyptalands hins forna voru kallaðir i múmíur. De mortuis nil nisi bonum þýðir: sá dauði er ekkert nema bein. Í brezka heimsveldinu sezt aldrei sól, af því að það liggur í austri, en sólin sezt í vestri. Hinrik 8. fjølgaði Englendingum af eigin ramm- leik um 40 þúsund. Í Bombay er loftlagið svo slæmt, að íbúarnir verða að búa annars staðar. Elísabet mikla var góð og vitur drottning og giftist heldur aldrei. Gaukurinn er fugl, sem verpir eggjum annarra fugla í hreiðrið sitt og øfugt. p -Klukkan i New York er seinni en i Englandi, af því að Amerika fannst løngu síðar. Munurinn á konungi og forseta er sá, að kon- inn ekki. ungurinn er sonur føður síns, en það er forset- vegna þess, að ég bæði sá það og fann, að því þótti mikil eftirsjá í okkur. — Ég held, að vitavarða- starfið sé alls ekki metið að verð- leikum, hvorki hvað aðbúnað snertir eða launakjør. Ég óttast það, að erfiðlega muni ganga inn- an tíðar að fá menn til þess að taka þessi einverustørf að sér. En nú. eru vitaverðir búnir að stofna með sér stéttarfélag og fer þá von- andi úr að rætast. HEILSUBILAÐUR — Í LAND ÉG missti heilsuna meðan ég var á Hermóði. Við vorum út af Horni og biðum eftir því að við kæm- umst inn að vitanum. Áður høfð- um við verið við Látrabjargsvit- ann og skipað þar upp kolum, matvørum og Ýmsum vistum og hafði ég staðið í þrotlausu erfiði lengi. Ég hafði verið í eldhúsinu til þess að fá mér eitthvað í svang- inn. en síðan farið upp á brú, Meira vissi ég ekki fyr en ég vakn- aði við það, að félagar mínir voru að stumra yfir mér þar sem ég lá á gólfinu Ég fór nú í land og leitaði lækn- is. Hann sagði að rétt væri fyrir mig að vera í landi um tíma og hvila mig og það gerði ég. Síðan fór ég aftur á Hermóð og var þar um sinn, en var oft stýrimaður á varðskipum á milli. En enn var ég lasinn og svo kom að því að í ráði var að byggja nýtt vitaskip og ætlaði ég á það. En ekki varð úr. Mig dreymdi draum, sem hafði áhrif á mig. Mig dreymdi, að maður kæmi til mín og sagði, að Guðni Thorlacius skipstjóri væri farinn út til að sækja skipið. „Ætlar þú ekki á nýja Hermóð, Guðjón?" Ég þóttist svara því játandi. Hann tók þá skipstjórahúfu og mátaði hana á mér en sagði svo: „Hún passar þér alveg ágæt- lega". „Já, ég ætla einmitt að taka hana". En í sama bili heyrðist mér øskrað á mig í aðvørunartón: „Kærðu þig ekki um hana". Og ég fór ekki. Hermóður fórst. Og síðan eru engar fregnir af sjómennsku minni. Sjómennsku- saga mín í um þrjátíu ár var ekki viðburðarík, en ég stundaði sjóinn eins og ég gat bezt og kunni bezt 146 SUNNUÐAGSBLAÐ — ALÞÝÐUBLAÐIГ og hlífði mér ekki í neinu. Ég missti heilsuna, og hvað er að segja við því. Og þegar ég var aftur kominn á skrið, fór ég að leita mér að annarri vinnu og þá vitanlega á landi. Ég réðst til Raf- tækjaverksmiðjunnar i Hafnar- firði. Var settur þar í dálítinn klefa og fenginn blýantur í hend- ur. Ég átti að hafa reiður á þeim vørum, sem látnar voru úr verk- smiðjunni og koma í hana. Og þessa atvinnu stundaði ég til árs- ins 1953, að ég veiktist enn og varð að fara í sjúkrahús — og ég átti ekki afturkvæmt í Rafha vegna veikindanna. Menn segja, að enn sé ég reffilegur á velli, en ég veit betur. Ég er farinn að bogna innvortis, þó að ég reyni að vera mannalegur á almannafæri. Mig dreymir enn drauma, og enn veit ég ýmislegt áður en það gerist, en heldur er þetta líka tek- ið að dofna. — Draumahæfileiki minn var mér guðs gjøf. Hann var staðreynd fyrir mér og hefur haft mikil áhrif á líf mitt. Ég var lengi einfari í lífinu. Ég var orðinn rúmlega fertugur þeg- ar ég kvæntist. Konan mín er Frið- rika Sveinsdóttir. Síðan ég kvænt- ist henni hef ég ekki verið einfari.