sunnudagur 21. februar 1965síða 30
‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›
Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.
Tekstur á síðuni
HERSHØFÐINGI OG
DRAUMÓRAMAÐUR
FYRRI HELMINGUR sautjándu
aldar var óróasamur tími í Evrópu.
Á árunum 1618-48 geisaði í Þýtka-
landi ægilegasta og mannskæð-
asta styrjøld, sem til þessa hafði
verið háð: Þrjátíu ára stríðið. Þessi
styrjøld átti upptøk sín í þeim
glundroða, sem málefni Þýzka-
lands voru í þá. Þjóðhøfðingi alls
Þýzkalands var keisarinn, en vøld
hans voru ærið takmørkuð. Aðals-
menn og landgreifar réðu hver
yfir sínum skika, og þeir voru
staðráðnir í að hamla gegn auknu
valdi keisarans. Heima fyrir áttu
þeir þó við að stríða meira eða
minna andsnúin stéttaþing, og þar
að auki áttu þeir í innbyrðis høggi
hver við annan. Kaþólskir þjóð-
høfðingjar mynduðu með sér sér-
stakt bandalag (og studdu keisar-
ann, þegar til ófriðarins dró), mót-
mælendur mynduðu annað ríkja-
bandalag. en það var klofið í kalv-
inista og lútherstrúarmenn sem
aldrei gátu komið sér saman um
neitt. Við þetta bættist svo, að ná-
grannaþjóðirnar sáu sér hag í því
að halda sundurlyndinu við og
helltu því olíu á eldinn, hvenær
sem færi gafst.
Þrjátíu ára stríðið hófst í Bæ-
heimi með uppreisn gegn keisar-
anum, sem þá var Ferdínand II.,
Habsborgari eins og allir keisarar
þeirra tíma og æ síðan. Kaþólska
bandalagið kom til liðs við keis-
arann við að bæla þessa uppreisn
niður, en mótmælendur snerust í
lið með Bæheimsbúum. Styrjøld-
in tók því strax á sig mynd trúar-
bragðastyrjaldar, þótt ønnur hags-
munaátøk kæmu þar ekki síður til
greina. hHershøfðingi káþólska
bandalagsins, Jóhann Tilly greifi,
var sendur gegn uppreisnarmønn-
um í Bæheimi og honum tókst að
gjørsigra þá í orrustu árið 1620.
Í þeirri orrustu tók þátt og gat sér
mikið orð maður, sem átti eftir
að verða einhver frægasti herfor-
ingi þessárar styrjaldar og um leið
einhver leyndardómsfyllsti og
furðulegasti persóhuleiki mann-
kynssøgunnar.
ALBRECHT WALLENSTEIN fædd
ist 15. sept. 1583 í Bæheimi. Faðir
hans var efnalítill óðalseigandi
og mótmælandi. Wallenstein
var alinn upp í trú mótmælenda,
en sá síður var ekkí vænlegur til
frama í Bæheimi undir stjórn
Habsborgara, og því kastaði hann
trúnni og féll í náðarfaðm ka-
þólsku kirkjunnar. Síðan kvæntist
hann tvisvar með fárra ára milli-
bili til fjár, en þetta hvort tveggja,
trúarskiptin og giftingarnar, hækk
uðu veg hans og framavonir til
mikilla muna. Hann gerðist her-
maður og vakti brátt athygli yfir-
manna sinna á sér með hæfileik-
um sínum og skipulagsgáfu. Her-
mennirnir kepptust um að komast
í sveit með honum, því að hjá hon-
um áttu þeir vísa góða aðbúð, þótt
henni fylgdi að vísu, að hart var
tekið á misgjørðum. Og ekki leið
á løngu þar tíl keisarinn sjálfur
WALLENSTEIN:
frétti. af þessum efnilega her-
manni.
Þegar herir Tillys høfðu sigrað
Bæheimsmenn 1620 voru allar
eígur mótmælenda í landinu serð
ar upptækar og þeim skipt milli
stuðningsínanna keisarans. Wal-
lenstein tókst að krækja sér í
vænan bíta af því herfangi og
hann fékk samþykki keisarans til
að taka sér hertoganafn og stofn-
setja nýtt hertogadæmi: Fried-
land. Þar settist hann að og hófst
þegar handa við stjórnarstørfin.
Skipulagshæfilleikar hans fengu
bår strax notið sin, og AGur en leið
å långu var velmegun komin & i
Friedland, þótt aðrir hlutar Bæ-
heims væru enn í sárum eftir
ófriðinn. Þarna sat: Wallenstein
á friðarstóli .í fimm ár.
Á yngri árum hafði Wallen-
stein stundað nám í Ítalíu, og þar
háfði hann meðal annars lagt
stund á stjørnuspeki, þá íþrótt að
lesa ørløg manna út úr stjérnun-
um. Sú hugmynd að samband væri
mílli ørlaga manna og hreyfinga
himinhnáttanna var talsvert út-
breidd á øllum miðøldum og allt
fram undir voru daga — mun jafn
vel ekki vera með øllu útdauð
enn, ef grannt er að gáð — og
Wallenstein var fulltrúa á þessa
kenningu. Hann kom sér snemma
í kynni við lærisvein frægasta
stjørnumeistara þeirra tíma,
Tycho Brahes, og sá lærisveinn
átti síðar eftir að verða enn fræg-
ari en meistarinn. Hann hét
Kepler. Kepler lagði hóróskóp
fyrir Wallenstein þegar árið 1609,
og hefur eflaust við það tækifæri
fylgt þeirri reglu, sem hann orð-
aði annars staðar á þessa leið:
„Stjarnfræðingur, sem spáir ein-
gøngu út frá himninum, en styðst
ekki við sál, skynsemi, kraft og
eðli þess manns, sem spádómurinn
á að rætast á, stendur ekki føst-
um fótum, og það er tilviljun, ef
honum heppnast spádómurinn",
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — SUNNUDAGSBLAÐ 147