sunnudagur 21. februar 1965síða 32
‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›
Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.
Tekstur á síðuni
þótta til hersins. En hann bannaði
hermønnunum strangléga øll rán
og hryðjuverk fyrir eigin reikning.
Wallenstein var óljúft að vera
undir annan settur, og strax áður
en hann hóf herferð sína. krafðist
hann þess af keisaranum, að hann
yrði útnefndur yfirhershøfðingi —
generalissimo — og settur yfir
Tilly, hershøfðingja kaþólska
bandalagsins. Hann lét keppinaut
sínum þó eftir að sigra Kristján
IV. í orrustu, en sjálfur hrakti
hann mótmælendur frá Austur-
Þýzkalandi á meðan. Þegar
Kristján 'IV. hørfaði eftir ósigur-
inn, var: það hins vegar Wallen-
stein, sem veitti honum eftirfør
norður allt Jótland. Kristján IV.
flúði þá yfir til eyjanna, en þangað
gat Wallenstein ekki sótt vegna
skipaskorts. Úr því var Wallen-
stein staðráðinn að bæta sem fyrst.
„Næstu árin ætla ég að verða sterk
ur á hafinu", skrifar hann til trån-
aðarmanns síns, Arnims ofursta,
sem stýrði herjum hans í Mecklen-
burg og Pommern í Þýzkalandi.
Árið 1627 brá Wallenstein sér
til Bæheims til að ræða við keis-
arann um hvaða friðarskilmála
skyldi setja Dønum. Wallenstein
var orðið ljóst að mesta hættan
stafaði ekki frá Kristjáni IV.,
heldur frá nágrannakonungi hans .
Gústaf Adólf í Svíþjóð, sem var
að gera ríki sitt að stórveldi. Og
Wallenstein ráðgerði að kaupa
hann af sér með því að bjóða hon-
um Noreg, en í Danmørku skyldi
keisarinn sjálfur gerast konungur.
Þetta kemur fram í bréfi, sem
hann ritaði Arnim ofursta 13. des-
ember 1627:
— Ég vil kunngera herranum,
að Schwarzenburg greifi hefur
skýrt frá því, að Danir vilja ekki
hafa konung sinn lengur. Nú tel
ég, að hægt væri að vinna að því,
að þeir veldu keisarann fyrir kon-
ung; að øðrum kosti mun keisar-
inn hernema landið og setja því
løg að geðþótta. En ef þeir kjósa
keisarann lofa ég þeim við heiður
minn, að þeir skulu halda frelsi
sínu og trúarbrøgðum. Ég vil biðja
herrann að ljá málinu lið; hann
mun án efa hljóta góða umbun
fyrir hjá keisaranum. Sænsku
skilyrðin fyrir bandalagi vil ég fá
að vita fljótt, því að því er ég bezt
veit, hefur keisarinn ekkert á
móti bandalagi við konunginn;
herrann þyrfti þó að komast að því
hvort komungi Svíþjóðar er al-
vara með þetta eða ekki, og eftir
því munum við fara, en hann er
sagður nokkuð hvikull. Hvað snert
ir smíði skipa, bið ég h:rrann
að gera sitt ýtrasta, því að við
verðum að snúa okkur að hafinu.
Þeir hermenn, sem eru í Mecklen-
burg verða að fara þaðan sem
fyrst. Herrann veit ástæðuna, og
því bíð ég herrann að hugleiða,
hvar þá skuli setja niður.
A. H.,t. F. (Albrecht hertogi
til Friedlands)
Ástæða þess að Wallenstein
vildi hlífa Mecklenburg við her-
sveitum sínum var sú, að keisar-
inn hafði veitt honum það ríki
fyrir sigra sína. Og hann kærði
sig ekki um að láta eigin eignir
hljóta sømu ørløg og ønnur þýzk
ríki: að þurfa að brauðfæða fjøl-
menna herflokka, sem stundum
tóku það með illu sem ekki fékkst
með góðu. Og þegar persónulegir
hagsmunir Wallensteins voru ann-
ars vegar varð allt annað að víkja.
Þegar Ferdinand keisari tók til
fyrir alvøru að semja frið við
Kristján IV. sagði Wallenstein:
„Mecklenburg verð ég að halda,
annars vil ég engan frið". Og þeg-
ar Danakonungur fékkst til að við-
urkenna yfirráð Wallensteins yfir
ríkinu, varð hann ánægður og sam
þykkti friðarsamninga sem voru
Dønum mildari en hann hafði áð-
ur viljað: Danir skyldu engin lønd
láta, en lofa að skipta sér ekki af
deilumálum í Þýzkalandi framar.
Sumarið 1628 tók Wallenstein
að stjórna Mecklenburg, og aftur
kemur skipulagsgáfan honum að
haldi. Hann reynist ágætur þjóð-
høfðingi og einkum var orð haft á
frjálslyndi hans í trúarefnum, en
slíkt var sjaldgæft á þessum tím-
um ftrúarátaka og trúarbragða-
styrjalda. Í ríki Wallensteins nutu
allir sømu réttinda, mótmælendur,
kaþólskir menn og Gyðingar, því
að ,samvizkan er engum háð nema
guði", eins og hann orðaði það
Hann ýtti undir aukna akuryrkju
og hlynnti að iðnaði, sá um að
borgunum væri haldið hreinum og
lét leggja til þeirra vatnsleiðslur.
Þá skipaði hann, að fátækraheimili -
FERDINAND II.
skyldi koma upp í hverjum hreppi,
og hann heimtaði að þessi hús
væri búið að fylla af fátæklingum
á ákveðnum degi.
Á hinn bóginn var herstjórn
hans á þessum árum øll í molum.
Hann neyddi borgirnar í Norður-
og Miðþýzkalandi með vopna-
valdi til þess að taka við setuliði,
en ef einhver veruleg andspyrna
var veitt, lét hann málið oftast
niður falla og virtist standa á
sama. Hersveitir hans voru líka
farnar að verða sannkølluð land-
plága, þegar þær lágu uppi á
borgum og héruðum árum saman.
Óánægja með Wallenstein: fór
støðugt vaxandi, og á ríkisþingi,
sem haldið var árið 1630, brauzt
hún fram af fullum krafti. Þjóð-
høfðingjarnir krøfðust þess, að
Wallenstein væri sviptur vøldum,
og keisarinn varð að láta undan,
þótt hann óttaðist að óvingast við
Wallenstein. Hann fól tveimur
vinum Wallensteins að tilkynna
honum, að hann væri afsettur sem
hershøfðingi og hertogi af Meck-
lenburg, en um leið skyldu þeir
fullvissa hann um vináttu keisar-
ans sjálfs.
Wallenstein hafði órað fyrir því,
hvað myndi gerast, og hafði farið
til eigna sinna í Bæheimi. Og þeg-
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — SUNNUDAGSBLAÐ 149
er z +