sunnudagur 4. apríl 1965síða 25
‹ fyrra síða allar 35 síður næsta síða ›
Hendan síðan hevði ongan tekst í PDF-skjalinum. Teksturin niðanfyri er lisin maskinelt (OCR) og kann hava villur.
Tekstur á síðuni
inni í vegginn bar sem áður høfðu
sjálfsagt verið gluggar, kannski
með strábrigðum fyrir á nóttunni
eins og gluggarnir í Botni, og hall-
aði sér út. Hæðirnar risu og hnigu
eins og myrkur, krappur sjór: —
hvergi sást þorp, ekki svo mikið
sem rústir. Neðan við hann svign-
aði veggurinn, mikill og døkkur.
úr augsýn; það sást ekki hvar hann
nam við jørð fyrir trjánum niðri
fyrir. Hann mundi søguna gømlu
og leikinn, sem þau léku í rúst-
unum í Botni. „Nó byggði sér bát.
Byggði hvernig bát? Bát handa
øllum bændunum og Birgi litla
líka. Bara handa bændunum? —
Bændunum og bjørnunum og
børnunum og Birgi litla lika ..”
Eitthvað brast með háu syngj-
andi hljóði, síðan kom langdreg-
ið andvarp. Hann snéri sér við
og sá að Þriðji var að fást við
annan haug, þann næststærsta í
salnum. Hann hafði fundið lang-
an kassa, fullan með hvíta af-
langa kubba og þegar hann kom
við þá, kvað við hljóð. hvert sinn
ofurlítið øðruvísi en áður; en þeg-
ar hann snerti þá øðru sinni, þøgðu
þeir. Annar gróf í hauginn í von
um nýjan fjársjóð, en fann ekki
nema ryðgaðan vír sem reif á hon-
um hendurnar. Það høfðust ekki
fleiri hljóð úr kassanum, og eng-
inn komst nokkurn tíma að því
hvers vegna hann søng við þeim
í fyrstu.
VI
Høfðu þau nokkurn tíma lifað
svo langan dag, jafnvel um há-
sumar? Vitanlega var sólargang-
ur lengri þarna uppi: þau vissu
ekki, að þegar var tekið að
skyggja í skóginum og dølunum í
neðra. Þau geystust niður løng
þrøng gøng í húsinu, hrasandi á
ósléttu gólfinu; Lísa kom á eftir
og fór sér hægt til að missa ekki
niður dótið úr pilsinu sínu.
Beggja vegna við gøngin voru
herbergi sem hvert um sig mundi
rúma heila fjølskyldu úr Botni:
þar inni var ryðgað og beyglað
rimlaverk sem þau skildu ekki til
hvers væri ætlað. Svo tók við
annar salur, bar sem engar súlur
voru; en þar var djúp ferhyrnd
gróf í gólfið, løgð lituðum hellum:
262 SUNNUDAGSBLAÐ — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
botninum hallaði svo hún var tíu
feta djúp í annan endann, en hinn
svo grunnur, að þau gátu hoppað
niður af barminum, niður í lauf-
skaflana og kvistina sem haust-
vindar høfðu feykt þangað; — og
alls staðar var fugladritur eins og
óhreinn snjór.
Í þriðja salnum rak þau í roga-
stanz; þar rákust þau allt í einu
á fimm ønnur børn beint fyrir
framan sig, sem mændu á þau, í
bútum og tætlum, hálft andlit,
klofið høfuð eins og eftir slátr-
unarhníf, hné sem var laust við
fótinn sem það fylgdi. Þau størðu
á ókunnu børnin. Þriðji steytti
hnefann øgrandi; samstundis hóf
eitt þeirra hnefa á móti. Það lå
við að lysti í bardaga: það var
léttir að tinna óvin að berjast
við í þessum tómheimi: þau fet-
uðu sig áfram eins og grimmir
kettir. Lísa fór síðust, og á móti
henni kom ønnur lítil stúlka, sem
líka var með ránsfeng í pilsinu
sínu og sams konar skoru neðan
í kviðinn, en grænleit valbrá á
andlitinu og annað augað vantaði.
Ókunnu børnin hreyfðu bæði
hendur og fætur, en stóða samt
kyrr upp við vegginn; skyndilega
nam nef við nef; og samt var
ekkert þar nema kaldur, sléttur
veggurinn. Þau hørfuðu undan,
færðu sig aftur nær og hørfuðu
undan; ekkert þeirra skildi þetta.
Svo þau søgðu ekki eitt einasta
orð um þetta fyrirbæri, voru ein
um furðu sína á leiðinni niður
stigann niður á næstu hæð. Þar
støldruðu þau aftur hlerandi og
skimandi, skrækar raddir þeirra
hið eina sem rauf þøgnina; en
þan óttuðust myrkrið, þar sem
fjallið byrgði allt ljós úti svo þau
hlupu áfram, með øgrandi hróp-
um, niður løng gøngin þar sem
sólin náði að skína inn, unz þau
staðnæmdust í trøppunum sem
lágu upp í dagsbirtuna uppi fyrir
þar sem reykháfarnir stóðu.
„Við skulum fara heim," sagði
Fyrsti. „Annars verður komið
myrkur."
„Hver er huglaus núna?" spurði
Þriðji.
„Þetta er bara hús. Þó það sé
stórt, þá er það bara hús."
„Það er ekki hús," sagði Pét-
ur; og þau sneru sér øll í senn
að honum með sømu spurning-
una í augunum,
„Hvað meinarðu með að það sé
ekki hús?" spurði Annar.
„Það er skip," sagði Pétur.
„Þú ert galinn. Hvaða skip
heldurðu sé svona stórt?"
„Hvaða hús heldurðu sé svona
stórt? spurði Lísa.
„Hvað er skip að gera hátt uppi
í fjøllum? Hvaða skip hefur reyk
háfa? Til hvers er allt þetta dót
í skipi? Hvaða skip er með her-
bergjum og heilum sølum?" Þau
gryttu að honum spurningunum
eins og steinvølum, svo hann
hann kæmi til sjálfs sín aftur.
„Þetta er skipið sem Nó átti,"
sagði Pétur.
„Þú ert vitlaus," sagði Fyrsti.
„Nó er bara leikur. Það var aldr-
ei neinn Nó til."
„Hvernig getum við vitað það?
Kannski dó hann fyrir mørg
hundruð árum síðan. Og hann
þurfti búr undir allar skepnurn-
ar, sem hann hafði með sér? —
Kannski þetta séu ekki herbergi
sem við sáum: kannski það séu
búr."
„En gryfjan í gólfið?" spurði
Lísa. „Til hvers var hún?"
„Ég var einmitt að hugsa um
það. Kannski það sé vatnsgeymir.
Einhvers staðar varð hann að
hafa vatnaskøtuna og alla frosk-
„Ég trúi því ekki" sagði
Fyrsti. „Hvernig ætti skip að
komast hingað upp alla leið?
„Hvernig ætti svona stórt hús
að komast hingað? Þú kannt søg-
una. Það flaut hingað. Svo sjatn-
aði flóðið og skipið varð eftir."
„Var Botn þá einhvern tíma á
sjávarbotni?" spurði Lísa gapandi
af undrun. Hún klóraði sér á rass-
inum sem var hruflaður af grjóti
og byrnum og ataður fugladrit.
„Botn var ekki til. Það er svo
langt síðan þetta var ..”
„Þetta gæti verið rétt," sagði
Annar. Þriðji sagði ekki neitt:
hann hélt áfram upp stigann upp
á þakið; Pétur fylgdi fljótt eftir
og komst fram fyrir hann. Sól-
ina bar við hæðirnar í fjarske
sem voru eins og øldufaldar; —
enginn sýndist til í heiminum
nema þau ein. Reykháfurinn, sem
snæfði himinhått yfir þeim, varp-